Handritshöfundar Skaupsins kynntir: Kristófer Dignus sest aftur í leikstjórastólinn

Kristófer Dignus verður leikstjóri Áramótaskaupsins 2015. Hann leikstýrði Skaupinu einnig árið 2013. Leikararnir Gói og Katla Margrét, grínistinn Steindi og Atli Fannar, ritstjóri Nútímans skrifa handritið. Þetta kemur fram á RÚV.

Kristófer Dignus segir á vef RÚV að árið hafi verið gott og gjöfult.

Það hefur verið mikið í gangi í þjóðfélaginu og mikið grín þarna úti sem þarf að tækla vel. Við viljum ýta á rétta takka en ekki skilja eftir marbletti.

Auglýsing

Handritshöfundunum til aðstoðar verður svokallað grínráð, sem sótt er úr erlendri fyrirmynd.

„Þetta er hugmynd sem kemur frá Steinda en flestir amerískir gamanþættir eru skrifaðir af heljarinnar teymum þar sem fleiri koma að vinnunni en nokkrir handritshöfundar,“ segir Kristófer á vef RÚV.

„Á fyrsta grínráðsfundinum komu fimmtán manns og við eigum eftir að halda allavega tvo í viðbót. Við viljum fá vinkla frá sem flestum grínistum sem við þekkjum.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing