Hard Rock vill opna aftur á Íslandi

Forsvarsmenn veitingahúsakeðjunnar Hard Rock vilja að staðurinn opni á ný á Íslandi. Hafa þeir sett sig í samband við aðila á Íslandi sem hafa þó ekki tekið boðinu. Þetta kemur fram á mbl.is.

Ísland er appelsínugult á sérstöku korti á vef Hard Rock sem sýnir hvar veitingastaði keðjunnar er að finna. Appelsínuguli liturinn táknar að keðjan sé með virk­um hætti leita eft­ir ein­hverj­um til þess að sjá um rekst­ur veit­inga­húss­ins hér á landi.

Auglýsing

Á mbl.is kemur fram að þegar smellt er á Ísland má sjá að Hard Rock vill opna stað í Reykja­vík en áhuga­sam­ir geta sótt um á heimasíðunni.

Tómas Tómasson, sem er í dag þekktur sem Tommi á Búllunni, opnaði Hard Rock í Kringlunni árið 1987. Gaum­ur hf, eign­ar­halds­fé­lag Bón­us-feðga, keypti svo staðinn árið 1999 og rak hann þar til hon­um var lokað í maí 2005.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing