Mikil umræða hefur skapast eftir Kastljós í gærkvöldi þar sem Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, verkefnastýra Samtakanna 78, tókust á um stöðu hinsegin fólks.
Þingmaður Miðflokksins í sviðsljósinu
Í þættinum hélt Snorri því fram að hætt væri við að umræðan um kyn- og hinsegin málefni hefði orðið of íþyngjandi og að „vók“-hreyfingin setti lýðræðislega umræðu í uppnám. Þorbjörg mótmælti því harðlega og benti á að raunverulegt bakslag væri þegar hafið – bæði hér á landi og víða um heim.
Dagur B. Eggertsson: „Snorri valtaði yfir þáttinn“
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, segir í færslu á Facebook að Snorri hafi verið „holdgervingur tilraunar til að flytja hingað heim glataða umræðu á kostnað fólks í viðkvæmri stöðu.“ Hann lofar Þorbjörgu fyrir yfirvegun og mennsku, en segir framgöngu Snorra „vandræðalega og gamaldags.“
„Þingmaður sem þolir ekki gagnrýni“
Blaðamaðurinn Thor Fanndal skrifar að Snorri hafi sýnt að hann ráði illa við gagnrýni:
„Mikið ofboðslega er trist að horfa á þingmann sem ræður bara ekki við þá hugsun að hann geti haft rangt fyrir sér… Frelsi frá tjáningu annarra og frelsi frá gagnrýni. Algjör krafa um aðdáun!“
Þórður Helgi Þórðarson: „Má reka þingmenn?“
Útvarpsmaðurinn Þórður Helgi Þórðarson deildi einfaldlega trans-fánanum með orðunum: „Má reka þingmenn?“

Stuðningur við Snorra úr óvæntri átt
Ekki voru þó allir á móti þingmanninum. Hallgeir Jónsson, samkynhneigður öryrki úr Breiðholti, lýsti yfir stuðningi við Snorra og Miðflokkinn. Hann segir sig finna meira frelsi til að vera sjálfur í kringum flokksmenn Miðflokksins en marga úr öðrum flokkum. Í færslu sinni gagnrýnir hann Samtökin ’78 fyrir að hafa fjarlægst hagsmuni samkynhneigðra og spyr hvort forseti Íslands hyggist „beita sér fyrir því að samtökunum verði skilað til homma og lesbía.“
Skiptar skoðanir – en sterk viðbrögð
Viðbrögðin sýna að Kastljósþátturinn hefur opnað upp á nýtt skarpa umræðu um stöðu hinsegin fólks, tjáningarfrelsi og pólitíska orðræðu. Á meðan sumir kalla framgöngu Snorra „popúlíska“ og „þunnildi“, fagnar hann stuðningi frá óvæntum hópum sem segja að Samtökin ’78 tali ekki lengur fyrir þeirra málstað.