Svolítið furðulegt átti sér stað á Twitter í dag. Heimilisbrauð var á allra vörum en það vissu ekki allir af hverju. Rétt er að taka fram að Myllan hefur ekkert að gera með þessa færslu, þrátt fyrir að það hafi verið ritstjóri Nútímans sem kom kassamerkinu #heimilisbraud í umferð.
En það var eiginlega óvart:
Það er gott að vera bjartsýnn þegar maður býr til hashtag. #heimilisbraud pic.twitter.com/xDDdAvORKt
— Atli Fannar (@atlifannar) April 28, 2015
Það sem átti að vera smá grín í morgunsárið vatt upp á sig og skyndilega var fólk farið að tísta um heimilisbrauð eins og enginn væri morgundagurinn.
Borðaði ekki morgunmat. Hefði verið gott að eiga #heimilisbraud
— Steiney Skúladóttir (@steiney_skula) April 28, 2015
fékk mér #heimilisbraud með banana í hádeginu, klárlega toppurinn á deginum
— María Hjarðar (@mariahjardar) April 28, 2015
Þegar ég var tíu ára þá var eini maturinn sem ég vildi annaðhvort ristað #heimilisbraud með nutella eða eintómt frosið. Allt eða ekkert.
— Ragna Bjarnadóttir (@ragnabjarna) April 28, 2015
https://twitter.com/olibto/status/593027559492816896
Sumir botnuðu ekkert í þessu.
Vakna, 5 people are tweeting about #heimilisbraud „hverskonar bylting er þetta?“
— ✧*̣̩˚̣̣⁺̣??????.₊̣̇. ✧ (@ofbeldi) April 28, 2015
Ég skil ekki. Er rosa lame að borða #heimilisbraud eða?
— Hildur Ragnarsdóttir (@hilrag) April 28, 2015
Stundum sé ég hashtögg, veit ekkert hvað er í gangi, en er mjög hræddur um að missa af, vera gamall og verða skilinn útundan. #heimilisbraud
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) April 28, 2015
Og aðrir sáu fyrir sér gleði á auglýsingastofu úti í bæ.
Hvaða auglýsingastofa er að skála í kampavíni fyrir hádegi? #heimilisbraud
— Hllgrmr Odssn (@hallgrimuro) April 28, 2015
En aðrir tóku bara þátt.
Ok, heimilisbrauð grínið gekk of langt.. síminn minn var að láta mig vita að þið væruð að twitta um #heimilisbraud
— Gísli Ólafsson (@GisliOlafs) April 28, 2015
http://t.co/GA1KjFPAP1
Ég er enn að bíða eftir bíómyndinni. Án efa stærsta brauðmál sögunnar. #heimilisbraud— þurrger (@Porgeir) April 28, 2015
https://twitter.com/bjollz/status/593012102169808896
Ef það er eitthvað svalara í gangi þarna úti í dag en #heimilisbraud vil ég fá að vita af því strax!
— Hrafn Kristjánsson (@ravenk72) April 28, 2015
Þetta er allavega ein óvæntasta netstjarna ársins. Og hverju breytti þetta? Jú, Myllan skráði sig á Twitter.