Hermigervill hefur sent frá sér fimmtu plötuna sína — reyndar þá fyrstu „alvöru“. Platan markar þáttaskil á ferli hans, eftir tvær plötur sem byggðar voru á sömplum og aðrar tvær sem innihéldu rafútgáfur af íslenskum dægurperlum. Nú stígur hann fram með frumsamið efni í fyrsta sinn, og því heitir platan einfaldlega I.
Hermigervill var á dögunum staddur í Boston ásamt hljómsveitunum Retro Stefson og Sin Fang og tónlistarmennirnir ákváðu að skella sér á leik Boston Celtics og New York Knicks í NBA deildinni. Takmarkið var að komast á risaskjáinn í TD Garden og það tókst.
Unnsteinn Manuel segir frá í samtali við Nútímann:
Við fundum miða sem einhver milljónamæringur hafði sett í endursölu — sætin voru á þriðja bekk en eins og oft á NBA leikjum þá er margt annað í gangi heldur en leikurinn sjálfur. Við ákváðum að hafa það að markmiði út leikinn að komast á jumbotronið, við höfðum heyrt af því að Pamela Anderson hefði verið uppgvötuð á svona skjá. Og það tókst!
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Gott ef auglýsingu fyrir nýju Hermigervilsplötuna er ekki laumað með:
Í tilkynningu frá Hermigervli kemur fram að hann fær góða gesti sér til liðsinnis í nokkrum lögum á plötnni, þar á meðal söngvarana John Grant og Unnstein Manúel Stefánsson.
„Platan inniheldur melódísk lög sem virka bæði á dansgólfum sem og í stofunni heima, nokkuð sem fáir hafa náð að útfæra jafn vel og Hermigervill, sem hefur fínpússað þennan eiginleika á tónleikaförum sínum um heim allan síðustu ár.“


