Dómsmálaráðherra segir of snemmt að taka afstöðu til þess hvort lögreglustjóranum á Vestfjörðum verði vikið frá störfum eftir að kvartanir bárust vegna meintrar hegðunar hans á þorrablóti Flateyringa fyrr í mánuðinum. Þetta kemur fram í umfjöllun RÚV um málið en um er að ræða Helga Jensson og atvik sem sögð eru hafa átt sér stað á þorrablótinu Stútungi.
Kvartanirnar lúta annars vegar að ásökunum um kynferðislega áreitni og hins vegar að því að lögreglustjórinn hafi ráðist á einstakling á samkomunni. Samkvæmt kvörtun sem send var nefnd um eftirlit með lögreglu (NEL), og RÚV hefur undir höndum, á hann jafnframt að hafa vísað minnst tvívegis til valds embættis síns í samskiptum við gesti.
Málið til meðferðar í ráðuneytinu
Í samtali við RÚV segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsadóttir, dómsmálaráðherra, að málið sé nú til skoðunar innan ráðuneytisins. Hún vill þó ekki tjá sig frekar að svo stöddu.
„Á meðan að málið er nýkomið og menn rétt farnir að glöggva sig á því þá er ekki mikið hægt að segja annað. En ég get staðfest það að þetta mál er til meðferðar,“ er haft eftir henni í frétt RÚV.
Spurð hvort hún hafi áhyggjur af því að málið geti haft áhrif á traust almennings til lögreglunnar á Vestfjörðum segir hún slík mál aldrei góð, en að hún viti enn lítið um málavexti og því sé ekki tímabært að draga ályktanir.
Ekki tekið af skarið um leyfi frá störfum
Þá var ráðherra spurð hvort kæmi til greina að viðkomandi færi í leyfi á meðan málið væri til skoðunar. Hún segir fyrst þurfi að skýra atvik málsins áður en slíkar yfirlýsingar séu gefnar út.
Samkvæmt RÚV liggur því ekkert fyrir á þessu stigi um hvort gripið verði til tímabundinna eða varanlegra aðgerða gagnvart lögreglustjóranum. Málið er enn í vinnslu.