Leitin að hinum eina rétta getur verið strembin. Markþjálfinn Linda Baldvinsdóttir vill hjálpa fólki í þessari leit og auglýsing hennar undir yfirskriftinni „Ert þú tilbúin til að hitta hinn eina sanna?“ hefur vakið athygli.
Linda heldur kvöld fyrir konur þann 14. október næstkomandi. Hún ætlar meðal annars að skoða 36 spurningar sem gott er að spyrja á fyrsta deiti og skoða hvar konurnar þurfa sjálfar að vera staddar til að vera tilbúnar að hitta mr. Right. Þá sýnir Solla hjá NYX helstu förðunartrixin.
„Við ætlum fyrst og fremst að eiga skemmtilegt kvöld saman, segir Linda í samtali við Nútímann og lofar að taka á móti konunum með konfekti og freyðivíni.
Spurningarnar 36 eru hluti af rannsókn sálfræðingsins Arthurs Aron, við Brook háskóla í New York og geta að sögn Lindu hjálpað fólki að skapa nánd, eða komast að því hvort viðkomandi eigi ekki saman.
„Þetta er stórsniðug aðferð, segir Linda og ítrekar að karlmenn geti einnig nýtt sér aðferðirnar, þó umrætt kvöld sé fyrir konur. „Þetta er gagnvirkt, ef ég væri á deiti með þér myndir þú spyrja mig að því sama.“
Spurningunum skiptir Linda upp í þrjá flokka og þær byrja sakleysilega að sögn Lindu. Sem dæmi um spurningar nefnir hún: „Ef þú mættir bjóða hverjum sem er í heiminum í mat, hverjum myndirðu bjóða?“ og „Hvernig lítur hinn fullkomni dagur út?“
Á öðru stigi er svo farið að deila persónulegri upplýsingum og í þriðja hluta eru svo spurningar á borð við „Hvað, ef eitthvað, er of alvarlegt til að grínast með?“ og „Dauði hvaða fjölskyldumeðlimar myndi hryggja þig mest og af hverju?“
Konurnar verða svo að mæta á kvöldið til að fá rúsínuna í pylsuendanum, sem hjálpar til að vinna úr þessum upplýsingum en Linda ætlar ekki að upplýsa í fjölmiðlum hver hún er. Hægt er að skrá sig í gegnum tölvupóst á linda@manngildi.is.