Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi hefst í áttunda sinn á morgun

Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi verður formlega hleypt af stokkunum á morgun föstudaginn 15. mars kl. 11:30 í Sorpu á Sævarhöfða.

Að þessu sinni er það persónan Matthildur úr samnefndu leikriti í uppfærslu Borgarleikhússins sem afhendir fyrstu hjólin í söfnunina. Þrjár ungar leikkonur skipta með sér hlutverki Matthildar og er það Erna Tómasdóttir sem mætir fyrir þeirra hönd. Hún hvetur þannig aðra til að láta gott af sér leiða og koma hjólum sem ekki eru í notkun til þeirra sem hafa not fyrir þau. Þess má geta að sama dag er leikritið Matthildur frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Barnaheill eru í samstarfi við Borgarleikhúsið vegna leiksýningarinnar sem fjallar meðal annars um ofbeldi og vanrækslu en það hefur verið eitt helsta viðfangsefni Barnaheilla að berjast gegn ofbeldi og vanrækslu á börnum.

Söfnunin stendur yfir til 23. apríl og hefjast úthlutanir á hjólum í apríl og standa fram í maí. Hjólin verða gefin börnum og unglingum sem ekki hafa tök á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt verður að sækja um hjól í gegnum félagsþjónustu sveitarfélaga.

Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Sorpu á Dalvegi í Kópavogi, Breiðhellu í Hafnarfirði, Sævarhöfða, Ánanaustum og Jafnarseli í Reykjavík og Blíðubakka í Mosfellsbæ. Sjálfboðaliðar munu gera hjólin upp undir styrkri stjórn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum áður en þau verða afhent. Verkefnið hefur mjög breiða samfélagslega skírskotun þar sem það eflir þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu.

Þetta er í áttunda sinn sem hjólasöfnunin fer fram en hún er unnin í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT, Sorpu og ýmsa aðra velunnara. Fasteignafélagið Reykjastræti lánar húsnæði undir verkstæði.

Um 1800 börn hafa notið góðs af hjólasöfnun Barnaheilla frá því henni var fyrst hrundið af stað árið 2012.

Hægt er að fylgjast með verkefninu á Facebook síðu söfnunarinnar og einnig er hægt að skrá sig þar til þátttöku í sjálfboðaliðastarf fyrir hjólaviðgerðir.

Auglýsing

læk

Instagram