Hræðilegar afleiðingar verkfalls dýralækna: Kjúklingurinn að klárast á KFC

Kjúklingurinn á KFC gæti klárast á næstu dögum ef verk­fall fé­lags­manna BHM í Dýra­lækna­fé­lagi Íslands heldur áfram mikið lengur.

Slátrun hef­ur nú legið niðri í rúm­ar tvær vik­ur en lítið er til af ferskum kjúklingi á landinu og hratt geng­ur á birgðir af frosn­um afurðum. Þetta kemur fram á mbl.is.

Auglýsing

Krist­ín Helga­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri KFC á Íslandi, segir í samtali við mbl.is að KFC verði opið fram á sunnudag og að til sé kjúklingur út þann tíma.

Kjúk­linga­bitarn­ir klár­ast um helg­ina ef ekk­ert breyt­ist. Þetta er óviðun­andi. Við erum með átta veit­ingastaði og frek­ar ein­hæf þar sem við not­um bara kjúk­linga­kjöt. Við þurf­um jafn­vel að fara að loka ef ekk­ert leys­ist.

Hún segir á mbl.is að borgarar og lundir verði áfram til en að bitarnir klárist hratt.

„Þeir eru að verða bún­ir. Það er hins veg­ar erfitt að vita ná­kvæm­lega hvernig fer. All­ir sem selja kjúk­ling eru nú að fara ofan í fryst­inn og tæma. Maður veit því ekki al­veg hvað er til.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing