Hraunið eru fyrstu íslensku spennuþættirnir á Netflix

Spennuþættirnir Hraunið, sem sýndir voru á RÚV árið 2014, eru komnir á Netflix.

Þættirnir eru þó ekki í boði á Netflix á Íslandi en á vefsíðunni Netflixable kemur fram að sjónvarpsáhorfendur í Bandaríkjunum, Kanada, Danmörku, Svíþjóð, Notegi, Finnlandi, Nýja-Sjálandi, Frakklandi, Bretlandi, Belgíu, Ástralíu og Írlandi með áskrift að Netflix geti horft á þættina.

Þættirnir kallast The Lava Field á Netflix og eftir því sem Nútíminn kemst næst eru þetta fyrstu íslensku þættirnir sem afþreyingarrisinn tekur til sýninga.

Spurður hvort það sé ekki kaldhæðnislegt að fyrstu íslensku þættirnir á Netflix séu ekki í boði á Íslandi segir Reynir Lyngdal, leikstjóri þáttanna, að það séu í gildi samningar um endursýningu á RÚV. „En vonandi fer þetta þangað þegar þeir renna út,“ segir hann.

En núna geta allir sem eru staddir í USA, UK, Skandinavíu, Evrópu, Ástralíu og víðar séð þættina. Það er gaman.

Þegar lokaþáttur Hraunsins var sýndur í september árið 2014 hafði sýningarrétturinn verið seld­ur til í Nor­egs, Svíþjóðar, Finn­lands, Tékk­lands, Lett­lands, Belg­íu, Hol­lands og Lúx­em­borg­ar. Viðræður um fram­hald voru þá hafn­ar.

Um 46 prósent þjóðarinnar sá lokaþátt­inn á RÚV. Þáttaröðin var fram­leidd af fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Pega­sus en meðfram­leiðend­ur voru RÚV og norska, sænska og finnska rík­is­sjón­varpið.

Auglýsing

læk

Instagram