Hraustasta kona heims vill verða leikkona: Fór áheyrnarprufur í Los Angeles

Katrín Tanja Davíðsdóttir, sem varð á dögunum heimsmeistari í crossfit og fékk titilinn hraustasta kona heims, lætur sig dreyma um að verða leikkona. Þetta kom fram í Íslandi í dag í kvöld.

Sjá einnig: Playboy fjallar um Katrínu Tönju

Auglýsing

Katrín Tanja sagði þó að hún væri að lifa drauminn í dag og að crossfit eigi hug hennar allan.

„Ég á mér leikkonudrauma sem fólk hlær nú bara að,“ sagði Katrín létt í Íslandi í dag.

Eftir leikana þá var verið að fylgjast með frá fyrirtæki úti — ég er búin að fara í áheyrnarprufur fyrir það þannig að maður sér hvað gerist — það kemur kannski eitthvað út úr þessu. Það getur alveg verið að það komi þannig tækifæri úr þessu sem væri ógeðslega gaman. Sjáum til.

Í viðtalinu kom einnig fram að hún ætli að leggja fyrir milljónirnar sem hún fékk fyrir sigurinn í heimsmeistaramótinu í crossfit.

Hún sagðist þó mögulega ætla að fá sér bíl en sagði það góða tilhugsun að eiga féð á bankabók þegar kemur að því að kaupa íbúð.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing