Hress typpi og píka slá í gegn í sænsku barnaefni

Tónlistarmyndband um typpi og píkur í þættinum Bacillakuten á sænsku Barnastöðinni hefur slegið í gegn. Þegar þetta er skrifað er myndbandið komið með rúmlega 600 þúsund áhorf á Youtube. Myndbandið má sjá neðar í fréttinni.

Í texta lagsins kemur meðal annars fram að sá sem er ekki í buxum sé með dinglandi typpi og beran rass. Þá kemur fram að píkur séu frábærar og einstaklega elegant á gömlum frænkum.

Loks er typpið og píkan sagt vera æðislegt gengi. Nútíminn tekur undir það.

Auglýsing

læk

Instagram