Grínistinn Josh Blue er væntanlegur til landsins og treður upp í Háskólabíói föstudagskvöldið 4. september. Hugleikur Dagsson hitar upp fyrir Blue ásamt Jóhannesi Inga, sem vann keppnina Fyndnasti nemandi Háskóla Íslands fyrr á árinu.
Blue stóð uppi sem sigurvegari í raunveruleikaþættinum Last Comic Standing á sjónvarpsstöðinni NBC árið 2006. Miðasala á uppistandið hefst klukkan 10 í fyrramálið á Miði.is.
Hann segist hafa tekið þátt í þættinum til að vekja athygli á því að fatlað fólk getur haft áhrif en hann er með CP hreyfihömlun og gerir mikið grín að sjálfum sér og viðhorfi fólks í uppistandinu.
Sjá einnig: RÚV gefur grænt ljós á aðra seríu af Hulla
Blue hefur undanfarið ferðast um heiminn og skemmt fólki og hefur meðal annars komið fram í þætti Ellenar Degeneres ásamt því að gefa út uppistandið Sticky Change á Netflix. Miði.is.
Josh Blue í miklu stuði á sviði.
Josh Blue talar einnig á ráðstefnunni Sköpun skiptir sköpum á Grand Hóteli. Ráðstefnan fjallar um aðgengi fatlaðs fólks að menningu og listum hér á landi.