Hundruð vilja eignast Nokia 3310

Grænir símar, sem selja og gera við raftæki, ætla að gefa heppnum Facebook-notanda síma. Það merkilega er að síminn er ekki nýr iPhone 6 eða Samsung S6, heldur 15 ára gamall Nokia 3310.

Áhugi fólks hefur ekki látið á sér standa og á fjórða hundruð manns vilja eignast gripinn, sem kom fyrst á markað árið 2000 og naut gríðarlegra vinsælda um allan heim.

Auglýsing

Samkvæmt Bjartmari hjá Grænni framtíð, sem á Græna síma, vilja ekki allir eignast nýjustu snjallsímana. Það var því ákveðið að kanna áhugann á því hve margir væru áhugasamir um að eiga gamla og endurnýtta síma. Kom í ljós að áhuginn er gríðarlegur að eignast hinn sögufræga Nokia 3310.

Hér má sjá færsluna frá Grænum símum.

Hver man ekki eftir Nokia 3310, sem komu fyrst á markað árið 2000? Við ætlum að gefa nokkra slíka, sem eru í frábæru á…

Posted by Grænir Símar on Monday, July 20, 2015

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing