Hundurinn hans Gísla Marteins byrjaður að tísta

Sjónvarpsmaðurinn og fyrrverandi borgarfulltrúinn Gísli Marteinn Baldursson dvelur nú ásamt fjölskyldu sinni í Massachusetts í Bandaríkjunum þar sem hann stundar nám í borgarfræði Harvard-háskóla. Tinni, hundurinn fjölskyldunnar, var eftir á Íslandi og til að komast í reglulegt samband við húsbónda sinn er hann byrjaður að tísta á Twitter.

Eftir því sem Nútíminn kemst næst er Tinni eini hundurinn á Íslandi sem er skráður á Twitter. Það er viðeigandi að Gísli Marteinn sé húsbóndi hans þar sem hann er afar virkur á samskiptamiðlinum.


Eftir frekar rólega byrjun er Tinni byrjaður að lýsa nánar hvað drífur á daga sína á meðan Gísli Marteinn stundar nám í Bandaríkjunum.

 

Auglýsing

læk

Instagram