Húsfélag í Skuggahverfinu kærir íbúðaeigendur sem leigja út íbúðir á Airbnb

Meirihluti íbúa í húsfélaginu í Skugga einum, sem samanstendur af sex fjölbýlishúsum sem byggð voru í Skuggahverfinu á árunum 2002 til 2005, ætlar að kæra eigendur þriggja íbúða sem leigðar eru ferðamönnum. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Íbúðirnar er að finna á vefnum Airbnb.

Auglýsing

Í frétt RÚV segir Geir Gunnlaugsson, formaður húsfélagsins, að þarna sé rekin atvinnustarfsemi. Þá segir hann að húsfélagið vilji fá úrskurð dómstóla um það hvernig túlka beri ákvæði fjöleignahúsalaganna varðandi þegar hafin er gististarfsemi í húsunum.

Geir segir í frétt RÚV að meirihluti eigenda hafi talið sig kaupa íbúðir í húsi þar sem yrðu íbúar með fasta búsetu en ekki þar sem yrði rekin gistiaðstaða.

Þetta er bara orðið allt annað umhverfi. Þegar svona starfssemi hefst, hefst umferð fólks sem að við þekkjum ekki neitt. Það er fólk að koma, það kemur seint á kvöldin, það fer snemma á morgnana.

Hann bætir við að þessi umgangur valdi truflunum hjá öðrum íbúum.

„Það eru kannski fjórir eða sex að fara í sturtu, fara út með ferðatöskur að morgni til klukkan fimm, þessir gestir þurfa oft að leita mikilla upplýsinga hjá öðrum, þetta er svona stöðugt kvabb.

Svo eru ákveðnar reglur um umgengni í fjöleignahúsum, þetta fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir því.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing