Héraðsdómur Reykjaness kvað í gær upp dóm yfir manni sem kom til Íslands árið 2022 á grundvelli alþjóðlegrar verndar. Maðurinn var dæmdur fyrir skelfilegt ofbeldi gegn konu sinni og börnum þeirra, sem flúðu heimilið skömmu eftir komu til landsins.
Fangelsi og milljónir sem skattgreiðendur greiða
Maðurinn hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm og var jafnframt dæmdur til að greiða fjölskyldu sinni tæplega tíu milljónir í miskabætur. Í reynd er það ríkissjóður sem greiðir bætur fórnarlambanna, þar sem ljóst er að hinn dæmdi mun aldrei greiða þær.
„Íslenskt samfélag horfir fram á gríðarlegan kostnað vegna þessa alls,“ skrifar Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður Morgunblaðsins, í status á Facebook. Hann bendir á að þetta sé kostnaður sem leggst ofan á milljónatjón vegna rannsóknar, málareksturs og fangelsisvistar.
Óupplýst uppruni – kom í gegnum Tyrkland og Grikkland
Í dómnum er ekki nefnt hvaðan maðurinn er, en þar kemur fram að hann hafi fyrst dvalið í Tyrklandi í níu mánuði, síðan í Grikklandi og víða í Evrópu áður en hann kom til Íslands.
Þetta vekur upp spurningar um af hverju hann fékk hæli hér í stað þess að sækja um í fyrsta örugga landi, eins og Dyflinarreglugerðin kveður á um.
„Miðað við lýsingarnar má ætla að fólki hafi stafað mikil hætta af honum“
Í dómnum er lýst endurteknu og viðurstyggilegu ofbeldi mannsins gegn eiginkonu og börnum, þar á meðal barsmíðum, hótunum um líflát og einangrun barna. Stefán Einar spyr í færslu sinni:
„Hvernig stendur á því að þessi maður fékk hæli hér en ekki í því landi sem hann kom fyrst til?“
Og hann heldur áfram:
„Miðað við lýsingarnar á þessum viðbjóði sem dæmdur var í gær þá má ætla að fólki hafi almennt stafað mikil og veruleg hætta af honum.“
Kerfið brást – samfélagið borgar brúsann
Fórnarlömbin standa eftir með brotið líf á meðan íslenskir skattgreiðendur sitja uppi með milljónakostnað og óhugnanlega staðreynd: kerfið brást.
Ekki einsdæmi – Kourani heldur áfram að kosta samfélagið hundruð milljóna
Málið er engan veginn einstakt. Mohamad Kourani, sem einnig nýtur alþjóðlegrar verndar, hefur reynst svo hættulegur að fangaverðir á Litla Hrauni þurfa að mæta honum í hnífavestum og hjálmum. Samkvæmt útreikningum hleypur kostnaður við vistun hans á hundruðum milljóna króna.
Við sitjum því ekki aðeins uppi með einn heldur fleiri hættulega einstaklinga sem hafa fengið alþjóðlega vernd á Íslandi – og brúsinn er alltaf sendur beint á skattgreiðendur.