IceHot1, notendanafn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, og Þóru Margrétar Baldvinsdóttur, eiginkonu hans, á vefnum Ashley Madison er vinsælt aftan á búningum stuðningsmanna landsliðsins í Hollandi.
Holland og Ísland mætast sem kunnugt er í Amsterdam í kvöld og rúmlega 3.000 íslenskir stuðningsmenn eru mættir á svæðið. Myndir af stuðningsmönnum með IceHot á bakinu má sjá hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Taktu prófið! hvaða landsliðsmaður ert þú?
Þóra Margrét, eiginkona Bjarna, velti snjóbolta niður internethæðina í vikunni þegar hún sagði frá því á Facebook-síðu sinni að þau hjón hafi skráð sig fyrir forvitnissakirá vefinn umdeilda Ashley Madison.
Vefurinn Ashley Madison leiðir saman gift fólk og fólk í samböndum sem hefur áhuga á að halda fram hjá maka sínum. Vefurinn komst í heimsfréttirnar á dögunum þegar tölvuþrjótar réðust á vefinn og stálu þaðan upplýsingum um 37 milljónir notendur vefsins.
Þessi mynd var tekin rétt í þessu
IceHot1 mættur
Fulltrúi Kjarnans í Amsterdam hitti þennan stuðningsmann
Kjarninn er mættur á Dam torgið í Amsterdam. Þessi líka. pic.twitter.com/BJfLr6qWdK
— Kjarninn (@Kjarninn) September 3, 2015
Og trommarinn Arnar Geir Ómarsson rakst á þennan í fluginu til Hollands
Um borð
Posted by Arnar Geir Ómarsson on Thursday, September 3, 2015