IKEA innkallar næturljós eftir að barn fékk rafstuð

IKEA hefur innkallað Patrull næturljós og hvetur viðskiptavini sína til að hætta notkun þess tafarlaust og skila því í verslunina. Í tilkynningu frá IKEA kemur fram að barn erlendis hafi fengið rafstuð úr ljósinu eftir að hafa fiktað í því.

Erlendis hefur IKEA borist ein tilkynning um barn sem fiktaði við ljósið í innstungunni með þeim afleiðingum að fremsti hluti þess datt af og barnið fékk rafstuð í fingur og sýnilega áverka.

Þá kemur fram að eftir slysið hafi ljósið tafarlaust verið tekið úr sölu.

Auglýsing

„Ljósið hefur verið prófað og uppfyllir alla viðeigandi löggjöf og staðla. Í rannsókninni sem fylgdi í kjölfar tilkynningarinnar voru meira en 600 Patrull næturljós prófuð og reyndust þau öll í lagi. Þrátt fyrir þetta hefur IKEA ákveðið að innkalla ljósið til að koma í veg fyrir möguleg slys.“

Hægt er að skila næturljósinu í IKEA verslunina og fá það endurgreitt að fullu. Ekki er nauðsynlegt að sýna kvittun fyrir kaupum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing