Bandaríski söngvarinn og Reykvíkingurinn John Grant er í viðtali á vef breska blaðsins The Guardian í dag. Ítarlega er fjallað um ævi og störf Grant og er því meðal annars slegið upp í fyrirsögn að Ísland hafi hreinlega bjargað honum.
Sjá einnig: Hlustaðu á nýja lagið með John Grant
John Grant glímir við þunglyndi, sem allir sem hafa hlustað á tónlist hans þekkja. Þá var hann um tíma djúpt sokkinn eiturlyfjafíkill.
„Ég finn fyrir öryggi hér,“ segir Grant í viðtalinu. „Það er varkár bjartsýni tengd þessari öryggistilfinningu.“
Í viðtalinu á vef Guardian er því meðal annars lýst þegar Grant fer á tónleika þar sem kærastinn hans treður upp. Hann vill halda nafni kærastans leyndu en bræður hans segja blaðamanna Guardian frá að Grant hafi komið með í fjölskylduferð til Benidorm í sumar.
Þeir gantast með að hann hafi tekið þetta alla leið með þeim.
John Grant sendir frá sér plötuna Grey Tickles, Black Pressure í október.