Íslandsbanki hefur gert samning við QuizUp um kaup á appinu QuizUp at Work, sem er ætlað að fræða og þjálfa starfsmenn ásamt því að skapa góðan starfsanda. Bankinn er fyrstur til að prófa appið hér á landi.
QuizUp at Work appið verður til hliðar við hið risavaxna 70 milljón notenda QuizUp samfélag. Í tilkynningu kemur fram að starfsmenn viðkomandi fyrirtækja fái aðgang að lokuðu samfélagi þar sem þeir geta kynnst hver öðrum, spreytt sig á sérsniðnum spurningum er varða starf sitt eða vinnustaðinn og komið ábendingum á framfæri.
Þorsteinn B. Friðriksson, framkvæmdastjóri QuizUp, segist ekki hafa séð fyrir að appið myndi þróast í þessa átt. „Það er samt stundum þannig að óvæntir markaðir opnast þar sem að eiginleikar nýrrar tækni nýtast mjög vel,“ segir hann.
Símenntun og þjálfun er orðinn mjög stór þáttur í starfsemi fyrirtækja, en um leið þá eru aðferðirnar sem er beitt frekar gamaldags. Þess er krafist að fólk sitji og hlusti á fyrirlestra heilu og hálfu dagana eða setjist niður og lesi langar handbækur. Fólk hefur minni þolinmæði gagnvart slíku í dag og þarna eru kostir QuizUp at Work augljósir.
Appið var kynnt í Bandaríkjunum á dögunum. Fjölmargir erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um þetta nýjasta útspil QuizUp. Þá kemur fram í tilkynningu að nokkur hundruð beiðnir hafi borist frá fyrirtækjum sem vilja fá kynningu á möguleikum QuizUp at Work.