Íslandsmet í ofbeldi í ár: 612 heimilisofbeldismál á hálfu ári

Á fyrstu sex mánuðum ársins 2025 hefur lögreglan skráð 612 heimilisofbeldismál. Til viðbótar bætast 636 mál sem flokkast sem ágreiningur milli skyldra eða tengdra aðila. Samtals þýðir þetta að yfir 1.200 mál tengd ofbeldi eða alvarlegum deilum innan fjölskyldna hafa ratað í málaskrá á aðeins hálfu ári. Það jafngildir því að fjögur slík mál séu skráð á hvern einasta dag.

Konur þolendur, karlar gerendur

Gögnin sýna skýra kynjaskekkju. Karlar eru gerendur í um 74% allra heimilisofbeldismála, en konur bera hitann og þungann af því að vera þolendur – í tveimur af þremur tilvikum. Meðalaldur þolenda er rúmlega 33 ár, á meðan gerendur eru að jafnaði um 36 ára gamlir. Þetta undirstrikar að hér er ekki aðeins um jaðarhóp að ræða heldur fullorðið fólk á besta aldri sem grípur til ofbeldis innan eigin heimila.

Auglýsing

Börn flækt inn í hringrás ofbeldis

Áhyggjuefni er hversu stóran þátt börn eiga í þessum málum. Skýrslan sýnir 88 tilvik þar sem barn beitti foreldri sínu ofbeldi – og 87 mál þar sem foreldri beitti barn sitt. Þessi þróun varpar ljósi á það hvernig ofbeldi erfist innan fjölskyldna. Börn sem alast upp við hótanir og barsmíðar læra að ofbeldi sé tæki til að leysa ágreining, sem getur fest sig í sessi sem lífsstíll.

Hótanir við líf og heilsu – alvarlegustu málin

Ekki eru öll mál jafn væg. Á árinu 2025 hafa þegar 69 mál fallið undir 218b grein hegningarlaga – þar sem einstaklingar hafa ítrekað eða á alvarlegan hátt verið ógnað lífi og heilsu. Þetta eru mál sem oft snúast um kerfisbundið andlegt og líkamlegt ofbeldi sem getur varað árum saman. Þessi staðreynd ætti að vekja upp spurningar um hvort kerfið okkar standi nægilega sterkt til að verja þá sem lifa í stöðugri ógn á eigin heimilum.

Höfuðborgarsvæðið ber höggið

Flest mál eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu. Rúm 74% allra heimilisofbeldismála á þessu ári hafa verið skráð í Reykjavík og nágrenni. Þrátt fyrir að landsbyggðin sé ekki undanskilin bendir þetta til þess að ofbeldið sé kerfisbundið vandamál í þéttbýlinu – þar sem nánd, félagsleg spenna og aukið álag geta ýtt undir hættulegar aðstæður.

Samfélag sem horfir undan?

Þegar tölurnar eru skoðaðar í heild blasir við myrkur veruleiki. Þrátt fyrir áratuga umræðu um aðgerðir, fræðslu og stuðning virðist ofbeldi innan heimila ekki vera á undanhaldi. Spurningin er hvort samfélagið sé orðið ónæmt fyrir þessum fréttum – eða hvort það sé tilbúið að horfast í augu við stærð vandans.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing