Íslensk kona lýsti óeirðunum í Baltimore í beinni á Twitter: „Ekki auðvelt að sofa í brennandi borg“

Óeirðir brutust út í borginni Baltimore í Bandaríkjunum í gær. Kveikt var í fjölda bygg­inga og bif­reiða og eyðilegg­ing­in er gríðarleg. Óeirðirn­ar brut­ust út í kjöl­far út­far­ar Freddie Gray sem lést af völd­um áverka sem hann varð fyr­ir í haldi lög­reglu.

Auglýsing

Karen Pálsdóttir er námsmaður í Baltimore og lýsti upplifun sinni á Twitter í nótt. Hún segir í samtali við Nútímann að þessa stundina sé aðeins rólegra en í gærkvöldi.

Það eru samt ennþá eldar. Fólk hefur verið að skera á brunaslöngurnar til þess að gera slökkviliðinu erfitt fyrir. Það er ennþá verið að brjótast inn í búðir en það er aðeins fjær húsinu mínu núna.

Víða um borg­ina má sjá brennandi bygg­ing­ar og bíla.

Karen hóf að tísta um óeirðirnar í gærkvöldi.

Innbrotsþjófarnir reyndu svo að brjótast inn hjá henni.

Karen sagði svo að herinn væri á leiðinni og að borgarstjóri Baltimore hafi tilkynnt um sérstakt útivistarbann — að fólk verði handtekin ef það er úti fyrir klukkan 10 eða eftir klukkan 17.

https://twitter.com/lilkronosp/status/592863098626768896

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing