Tilkynnt hefur verið hverjir verða í íslensku dómnefndinni í Eurovision síðar í maí.
Í dómnefndinni eru Ragna Kjartansdóttir, best þekkt sem rapparinn CELL7, tónlistarkonan Védís Hervör Árnadóttir, Einar Bárðarson, forstöðumaður höfuðborgarstofu, Unnur Sara Eldjárn söngkona, Birgitta Haukdal söngkona og rokkarinn Heiðar Örn Kristjánsson.
Atkvæði dómnefndar gilda fimmtíu prósent á móti símakosningu í keppninni. Dómnefndin gefur öllum löndum nema Íslandi stig.
Sjá einnig: María fer í Eurovision
Eurovision fer fram í Vín í Austurríki í maí. Fyrri undanriðillinn fer fram þriðjudaginn 19. maí en sá seinni fimmtudaginn 21. maí. Úrslitin verða laugardaginn 23. maí.
Í frétt RÚV um dómnefndina í fyrra kom fram að yfir dómnefndinni situr verkefnastjóri kosningarinnar (Televoting Project Leader) og einnig fulltrúi sýslumanns sem gætir að því að öll framkvæmd sé lögum og reglum samkvæmt.
Þá kom fram að strangar reglur gildi um alla framkvæmdina þar sem meðal annars er kveðið á um viðveruskyldu dómnefndar í tiltekinn tíma eftir að flutningi laga lýkur.
Loks er mikil áhersla lögð á öryggi við innslátt á niðurstöðum dómnefndarmeðlima. Allt er þetta framkvæmt með fulltrúa sýslumanns á staðnum.