Íslenskir karlar kúgaðir eftir að hafa „viðhaft kynlífstengdar athafnir“ á Skype

Algengt er að íslenskir karlar séu kúgaðir eftir að hafa viðhaft kynlífstengdar athafnir á Skype. Athafnir eru þá teknar upp á myndband án þess að þeir viti af því og svo er því hótað að birta myndbandið opinberlega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem fólk er hvatt til að gæta að því hvað það gerir og segir á internetinu. „Upprifjunin er tilkomin vegna tilkynninga sem okkur berast næstum reglulega,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Hér er verið að vísa til þess þegar ákveðin kynni takast með íslenskum karlmanni og erlendri konu í gegnum fésbókina. Eftir örstutt kynni eiga samskiptin það til að færast yfir á Skype, þ.e. bæði í hljóð og mynd. Þar viðhefur karlinn oftar en ekki kynlífstengdar athafnir.

Auglýsing

Lögreglan segir að svo sé karlinum tilkynnt að athæfið hafi verið tekið upp á myndband. „Síðan er viðkomandi hótað að það verði sent til opinberrar birtingar, bæði vinum hans á fésbókinni sem og YouTube, ef ekki komi til peningagreiðsla innan tiltekins tíma,“ segir í tilkynningunni.

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ráðlagt þeim sem í þessu lenda að láta ekki undan hótunum enda viðbúið að þær haldi áfram engu að síður. Mál sem þessi eru jafnframt alvarleg áminning um mikilvægi þess að fólk gæti að því hvað það segir og gerir í samskiptum á internetinu og því er það áréttað hér.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing