Íslenskir karlmenn fjárkúgaðir á Smitten: „Hún hótaði að senda þetta á fjölskylduna mína“

Skipulögð fjárkúgun virðist nú beinast að íslenskum notendum stefnumótaappsins Smitten – og þá aðallega karlmönnum. Aðferðin er einföld en grimm: byggt er upp traust, samskipti færð yfir á WhatsApp og í kjölfarið eru fórnarlömb beitt hótunum um að nektarmyndir verði sendar nema greitt sé.

Nútíminn hefur rætt við íslenskan mann sem lenti í þessari gildru. Hann segir málið hafa hafist með saklausu „matchi“ á Smitten. Prófillinn var undir nafninu Ämalia og sagðist viðkomandi vera stödd á Íslandi.

Auglýsing

Samkvæmt frásögn mannsins sendi hún jafnframt staðsetningu og „droppaði pinna“ sem átti að sýna hana í Hraunbæ í Árbænum. Það hafi aukið trúverðugleika samskiptanna og dregið úr tortryggni.

Vildi færa samtalið á WhatsApp

Fljótlega var hann beðinn um símanúmerið sitt. Hún gaf ekki sitt eigið númer, heldur vildi færa samtalið yfir á WhatsApp.

Eftir að samskiptin fóru þangað fór málið að taka aðra stefnu.

„Ég get náttúrulega sjálfum mér um kennt að hafa verið plataður í að senda myndir af mér en mig grunaði samt ekki neitt, bara núll“

Samkvæmt frásögn mannsins var honum send kynferðisleg mynd og hann hvattur til að senda mynd og jafnvel myndskeið til baka. Þegar hann hafði sent mynd og myndskeið hófust hótanirnar. Honum var sagt að nema hann greiddi ákveðna upphæð yrðu myndirnar sendar til vina hans, fjölskyldu og annarra vandamanna.

Sá sem var að fjárkúga sendi honum jafnframt skjáskot sem áttu að sýna að verið væri að senda myndirnar á vini hans á Facebook. Maðurinn segir að þar hafi honum brugðið verulega og hann orðið skelfingu lostinn yfir því að myndirnar gætu farið í dreifingu.

Sextortion er þekkt aðferð

Þetta mynstur er vel þekkt erlendis og gengur undir heitinu sextortion, eða kynferðisleg fjárkúgun. Yfirvöld í bæði Bandaríkjunum og Bretlandi hafa varað við slíkum brotum á síðustu árum. Þar hefjast málin gjarnan á stefnumótaforritum eða samfélagsmiðlum áður en samtalið er fært yfir á önnur samskiptaforrit. Í kjölfarið eru fórnarlömb beitt þrýstingi með hótunum um að viðkvæmt efni verði sent til vina, fjölskyldu eða samstarfsfólks.

Að borga stoppar ekkert. Það kallar bara á næstu upphæð – og hún er hærri.

Í litlu samfélagi eins og því íslenska geta slíkar hótanir haft þungbærar afleiðingar. Gerendurnir treysta á að fórnarlambið óttist afleiðingarnar meira en nokkuð annað.

Smitten hefur á undanförnum árum orðið eitt vinsælasta stefnumótaapp landsins. Þar eru einfaldlega margir notendur – og það vita þeir sem fjárkúga líka.

Nútíminn hvetur þá sem nota stefnumótaöpp til að halda samskiptum innan appanna sjálfra. Þegar samtöl eru færð yfir á forrit á borð við WhatsApp aukast líkurnar á að lenda í aðilum sem svindla, svíkja og reyna að fjárkúga fólk.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing