Íslenskt fjölskyldufyrirtæki dregið inn í alþjóðlegar refsiaðgerðir – „Kerfið étur börnin sín“

Þegar stjórnvöld beita íslenskt hátæknifyrirtæki viðskiptaþvingunum sem ætlað er að ná til rússneskra útgerðarrisa, eru það ekki Rússar sem taka höggið heldur íslenskt starfsfólk. Vélfag á Akureyri, sem hefur í áratugi verið lykilaðili í íslenskum sjávarútvegi, stendur nú á barmi hruns – og ástæðan er ekki slæmur rekstur eða skortur á verkefnum, heldur pólitískar ákvarðanir byggðar á ósönnuðum ásökunum.

 

Uppsagnirnar byrja – fleiri á leiðinni

Níu starfsmönnum hefur þegar verið sagt upp hjá Vélfagi og ef íslensk stjórnvöld aflétta ekki þvingunaraðgerðum er líklegt að fleiri eiga eftir að fylgja. Silfá Huld Bjarmadóttir er markaðstjóri Vélfags en það voru foreldrar hennar sem byggðu fyrirtækið upp og eiga enn hluta þess. Silfá hefur miklar áhyggjur af stöðunni og öllum þeim fjölskyldum sem byggja afkomu sína á Vélfagi. Hún birti á dögunum harðorða færslu á Facebook sem vakti mikla athygli:

„Kerfið étur börnin sín. Þegar íslenskt fjölskyldufyrirtæki, sem hefur starfað heiðarlega í áratugi, er dregið inn í alþjóðlegar refsiaðgerðir – án þess að hafa brotið nein lög – þá er eitthvað alvarlega farið úrskeiðis.“

Auglýsing

Lykilaðili í íslenskum sjávarútvegi

Vélfag hefur í yfir 30 ár þróað og framleitt hátæknilausnir fyrir fiskvinnslu. Vélar fyrirtækisins eru notaðar í 85% íslenskra frystitogara og í fjölmörgum vinnslustöðvum hérlendis og erlendis. Þjónusta og varahlutir frá Vélfagi tryggja að íslenski flotinn geti haldið áfram veiðum án truflana.

Nú er afhendingaröryggi í hættu vegna frystingar fjármuna og banns við fjárhagslegum stuðningi eigenda. Þannig gætu aðgerðir sem ekkert hafa með daglega starfsemi Vélfags að gera valdið truflunum í einni mikilvægustu útflutningsgrein Íslands.

Um hvað snýst málið?

Viðskiptaþvinganirnar Vélfags byggja á því að fyrrverandi eigandi þess er rússneska útgerðarfélagið Norebo. Norebo keypti stærsta hlutinn í Vélfagi skömmu áður en Vladimir Pútín réðst til atlögu gegn Úkraínu. Það sem gerir stöðuna sérkennilega er að núverandi eigandi Vélfags, Ivan Nicolai Kaufmann, er ekki Rússi heldur viðskiptamaður með ríkisfang í Sviss og Liechtenstein. Hann keypti Vélfag í maí 2025 af Nikita Orlov, norskum ríkisborgara og syni Vitaly Orlov eiganda áðurnefnds Norebo.

Það er kaldhæðnislegt að allir aðilar málsins séu ríkisborgarar þeirra fjögurra ríkja sem mynda EFTA en EFTA stendur fyrir European Free Trade Association, eða Fríverslunarsamtök Evrópu.

Ivan Nicolai Kaufmann, fjárfestir frá Sviss og Liechtenstein, hefur tekið upp hanskann fyrir Vélfag og íslenskan sjávarútveg þrátt fyrir pólitískan mótbyr.

Kaufmann sá tækifæri þegar ljóst var að rússnesk útgerðarfélög áttu yfir höfði sér viðskiptaþvinganir og eflaust sá Nikita Orlov, verandi sonur rússnesks auðkýfings, í hvað stefndi. Kaufmann tók áhættu því hann taldi sig geta stutt íslenskt fyrirtæki og haldið því á floti, enda Vélfag stöndugt og spennandi fyrirtæki með mikla sérþekkingu á fiskvinnsluvélum. Í stað þess hefur Kaufmann verið settur undir sama hatt og fyrri eigendur – með tortryggni um að hann sé leppur Rússa – án þess að stjórnvöld hafi sýnt fram á nein haldbær sönnunargögn þess efnis.

Á meðan blæðir fyrirtækinu hægt og bítandi út, með íslenska starfsmenn í fremstu víglínu.

Starfsfólkið ber sársaukann

Í áðurnefndri færslu Silfáar Bjarmadóttur áréttar hún að þetta séu ekki aðeins ákvarðanir sem bitni á fyrirtækinu heldur á samfélaginu í heild:

„Nú er rekstur fyrirtækisins, störf starfsfólks okkar og afhendingaröryggi fyrir íslenskan sjávarútveg í hættu vegna ákvarðana stjórnvalda. Þessar ákvarðanir bitna ekki aðeins á okkur – þær bitna á sjávarútvegi, útflutningstekjum og orðspori Íslands.“

Þegar stjórnvöld setja Vélfag undir sama hatt og rússneska njósnara, án beinna sannana, eru það starfsmennirnir – fólk með fjölskyldur og heimili á Akureyri, Ólafsfirði og í Kópavogi – sem missa vinnuna.

Ranglæti sem þarf að leiðrétta

Í rúma tvo áratugi hefur Vélfag byggt upp verðmæti sem nýtast þjóðarbúinu – nýsköpun sem hefur eflt samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs á alþjóðavísu. Nú stendur það sama fyrirtæki frammi fyrir gjaldþroti vegna pólitískra ákvarðana sem bitna mest á starfsfólki þess.

„Kerfið étur börnin sín,“ skrifar Silfá – og í þessu tilfelli er það íslenskt hugvit, íslensk störf og íslenskur sjávarútvegur sem verða fórnarlömbin.

Hver fær Vélfag næst?

Í stuttu spjalli Ivans Kaufmann við blaðamann Nútímans lýsir hann furðu sinni á starfsháttum utanríkisráðuneytisins og framkomu Arion Banka en hann telur sig hafa lagt fram öll gögn sem þurfi til að sanna það að hann keypti félagið og sé réttmætur eigandi þess. Kaufmann hefur aldrei verið á neinum alþjóðlegum þvingunarlistum og það hefur seljandinn, Nikita Orlov, reyndar ekki verið heldur. Sem fyrr segir byggja viðskiptaþvinganirnar eingöngu á því að hverjir fyrrverandi eigendur Vélfags voru.

„Það er synd að segja það en ég trúi ekki lengur að hér sé um vanþekkingu eða vanhæfni að ræða. Í dag tel ég að um sé að ræða skipulagða aðför þar sem bæði ráðuneytið og bankinn vilji koma Vélfagi í þrot til að „sneiða það niður“ og úthluta verðmætum einkaleyfum þess fyrir slikk til „réttra“ aðila“ segir Ivan Kaufmann.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing