Ísold Uggadóttir var í gærkvöld valin besti leikstjórinn í flokki alþjóðlegra kvikmynda, á Sundance-kvikmyndahátíðinni sem haldin er í Park City í Utah í Bandaríkjunum. Mynd hennar, Andið eðlilega, var einnig tilnefnd sem besta kvikmyndin í flokki alþjóðlegra kvikmynda á hátíðinni.
Myndin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda en hún fléttar saman sögum tveggja ólíkra kvenna, hælisleitanda frá Gíneu-Bissá og ungrar íslenskrar konu sem hefur störf við vegabréfaskoðun á Keflavíkurflugvelli.
Ísold Uggadóttir er leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar. Með aðalhlutverk fara leikkonurnar Kristín Þóra Haraldsdóttir og Babetida Sadjo.
Andið eðlilega er fyrsta kvikmynd Ísoldar í fullri lengd en áður hefur hún leikstýrt stuttmyndunum Góðir gestir, Njálsgata, Clean og Útrás Reykjavík, sem allar voru valdar til sýninga á kvikmyndahátíðum víða um heim og hlutu fjölda viðurkenninga. Ísold lauk meistaranámi í leikstjórn og handritagerð frá Columbia háskóla í New York vorið 2011.
Skúli Fr. Malmquist framleiðir myndina fyrir hönd Zik Zak kvikmynda en meðframleiðendur eru þær Inga Lind Karlsdóttir, Lilja Ósk Snorradóttir og Birna Anna Björnsdóttir, auk meðframleiðenda frá Belgíu og Svíþjóð.