Japanir vildu fá íslenska lunda í dýragarð

Stjórnvöld í Hokkaido-héraði í Japan höfðu fyrr á þessu ári óskað eftir því að fá íslenska lunda senda lifandi til þess að nota í dýragarð ytra. Beiðninni var hafnað vegna slæmrar stöðu lundastofnsins.

Samkvæmt RÚV hafa nokkur erlend ríki, meðal annars Singapore árið 2010, áður óskað eftir íslenskum lundum í sýningar. Slíkum beiðnum er nær alltaf hafnað og eina þekkta undantekningin er frá 2006 þegar særðir lundar voru sendir í dýragarð í Bretlandi.

Auglýsing

Líffræðingurinn Erpur Snær Hansen segir við RÚV að áhugi á lundanum sé mikill á heimsvísu, en bendir á tvískinnung í því að banna útflutning á nokkrum tugum fugla á sama tíma og um 25 þúsund lundar eru veiddir árlega á Íslandi.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing