Jeannie gefur ráð um hvernig eigi að komast hjá klikkuðu áfengisverði á Íslandi

Bandaríkjakonan Jeannie heldur úti Youtube síðunni Life With a View þar sem hún sendir frá sér góð ráð á hverjum mánudegi.

Jeannie er búsett á Íslandi og því eru myndbönd hennar oftast tengd Íslandi á einhvern hátt. Í gær sendi hún frá sér myndband þar sem hún sýnir fólki hvernig er best að komast hjá því að borga of mikið fyrir áfengi hér á landi.

„Við höfum oft áður talað um hversu dýrt það getur verið að koma til Íslands. Þannig það ætti ekki að koma ykkur á óvart að áfengi hérna er ofur dýrt,” segir Jeannie.

Hún hefur áður gefið útlendingum þau ráð að kaupa áfengi í fríhöfninni en í nýja myndbandinu fer hún yfir hvernig er best að nýta sér Happy Hour í Reykjavík.

Horfðu á myndbandið

Auglýsing

læk

Instagram