Fyrrverandi Bandaríkjaforsetinn Joe Biden mætti nýverið í kirkju í Delaware með áberandi ör á höfðinu. Örið er afleiðing Mohs-aðgerðar sem hann gekkst undir til að fjarlægja húðkrabbamein. Inside Edition birti fyrst myndefni af Biden þar sem hann heilsaði stuðningsmönnum sínum utan við kirkju í Rehoboth Beach.
Kvöldið áður hafði hann sést í ísbúð þar sem hann bar derhúfu sem virtist hylja sárið. Einnig mætti hann með plástur á enninu á útför fyrrum ríkisstjóra Delaware, Mike Castle, þann 22. ágúst. Talsmaður hans staðfesti síðar við DailyMail að um væri að ræða Mohs-aðgerð.
Áður gengist undir aðgerð á brjóstkassa
Biden, sem er 82 ára, fór einnig í aðgerð árið 2023 þar sem basalfrumukrabbamein var fjarlægt af brjóstkassa hans. Nú er hann jafnframt í meðferð vegna krabbameins í blöðruhálskirtli á fjórða stigi.
Sama aðferð var notuð á eiginkonu hans, Jill Biden, árið 2023, þegar hún fór í forvarnaraðgerð gegn húðkrabbameini.
Hvað er Mohs-aðgerð?
Mohs-aðgerðin er algengasta aðferðin við að fjarlægja húðkrabbamein í Bandaríkjunum, framkvæmd um 876.000 sinnum á ári. Hún fer fram á göngudeild, tekur oftast nokkrar klukkustundir og krefst aðeins staðdeyfingar.
Markmiðið er að fjarlægja krabbameinsvef með sem minnstum skaða á heilbrigðan vef. Skurðlæknirinn fjarlægir húð í lögum, sendir hvert lag í rannsókn og heldur áfram þar til engar krabbameinsfrumur sjást lengur.
Sum sár eru saumuð og gróa á tveimur vikum, önnur geta gróið sjálf á um það bil einum mánuði.
Alvarlegt stig krabbameinsins vekur spurningar
Í maí vakti Biden mikla athygli þegar hann greindi frá því að hann væri með krabbamein í blöðruhálskirtli sem hefði dreift sér í bein. Læknar sögðu það „óhugsandi“ að sjúkdómurinn hefði ekki verið greindur fyrr.
Krabbameinið fékk Gleason-einkunn 9 og er í flokki 5, sem telst mjög árásargjarnt stig. Dr. Howie Forman við Yale háskóla sagði að PSA-próf hefði að öllum líkindum sýnt fram á krabbameinið löngu áður en greiningin var staðfest.
Umdeild heilbrigðisyfirlýsing fyrir kosningar
Í febrúar 2024, þegar Biden var enn líklegur forsetaframbjóðandi Demókrata, gaf læknir hans, Dr. Kevin O’Connor, út skýrslu þar sem hann taldi Biden „hæfan til starfa“.
Þetta hefur valdið gagnrýni frá íhaldsmönnum sem saka ríkisstjórn hans um að hafa reynt að hylma yfir versnandi heilsu hans á meðan hann gegndi forsetaembættinu.