today-is-a-good-day

Jón Gnarr flytur til Bandaríkjanna

Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, grínisti og skáld, flytur til Bandaríkjanna eftir áramótin. Þetta upplýsti hann á Facebook fyrr í kvöld.

Það er orðið ljóst að við litla fjölskyldan munum flytja til Houston, Texas eftir áramótin. Erum komin með íbúð á ágætum stað og Nonni mun fara í Edgar Allen Poe Elementary School. Held að þetta gæti verið upphafið að einhverju mjög athyglisverðu ævintýri.

Í samtali við Kjarnann segir Jón að Rice-háskólinn hafi boðið honum að dvelja við stofnun sem heitir Center for Energy & Enviromental in the Human Sciences. Hann og fjölskylda hans verða í Bandaríkjunum fram á vor að minnsta kosti.

Jón sendi á dögunum frá sér bókina Gnarr! How I Became the Mayor of a Large City in Iceland and Changed the World.

Hann var í viðtali við The Guardian á dögunum og var meðal annars spurður út í forsetaframboð:

Ég hef allt til brunns að bera, nema ég trúi ekki á Guð. Ég myndi vilja tala um trúarskoðanir mínar og ég er ekki viss um að það sé viðeigandi fyrir forseta að neita að hitta páfann. Fáum konu í embættið og ég skal hitta hana.

Blaðakonan Emma Brockes spyr Jón einnig út í grínið, sem hún segir hans leið til að takast á við hlutina. Jón segir að allir sem til þekktu hafi vitað að Georg Bjarnfreðarson sé byggður á föður hans en bætir við að faðir sinn hafi aldrei talað um það.

„Þegar ég var í fyrsta sketsaþættinum mínum í sjónvarpi spurði ég pabba hvort hann hafi séð þáttinn,“ segir Jón. „Hann svaraði játandi. Ég spurði þá hvað honum fannst og hann svaraði: „Þetta er áhugavert. Þetta á að vera fyndið, er það ekki?“ Ég sagði já. Þá sagði hann: „Nú jæja, það mistókst algjörlega.““

Auglýsing

læk

Instagram