Vegfarendur á Austurvelli og þingmenn á leið til þingsetningar ráku upp stór augu í dag þegar við þeim blasti risavaxið plakat af Jóni Sigurðssyni á typpinu.
Plakatið hangir utan á húsi við Austurstræti og kallast skemmtilega á við styttuna af Jón Sigurðssyni. Plakatið sýnir Jón þar sem hann er búinn að hneppa frá frakkanum og hreinlega frelsa á sér tittlinginn.
Nútíminn kannaði málið nánar en um er að ræða auglýsingu fyrir kvikmyndina Fyrir framan annað fólk, eftir Óskar Jónasson.
Hér má sjá myndina betur. Smelltu til að stækka.
Fyrir framan annað fólk fjallar um grafíska hönnuðinn Húbert sem á erfitt með samskipti við hitt kynið.
Hann kynnist draumadísinni Hönnu í vinnustaðarpartíi en kann engar aðferðir til að nálgast hana og í hita augnabliksins bregður hann á það ráð að herma eftir kvennabósanum yfirmanni sínum sem kann öll trixin í bókinni.