Kaleo heldur toppsætinu í Bandaríkjunum

Lagið Way Down We Go með hljómsveitinni Kaleo er í efsta sæti bandaríska Billboard Alternative-listans aðra vikuna í röð. Lögin á listanum eru þau mest spiluðu á útvarpsstöðvum í Bandaríkjunum sem sérhæfa sig í rokktónlist.

Nútíminn greindi frá því í síðustu viku þegar Kaleo komst á toppinn og skaut hljómsveitinni Red Hot Chili Peppers ref fyrir rass. Þessa vikuna er hljómsveitin Blink-182 í öðru sæti með lagið Bored to Death og hljómsveitin Twenty One Pilots er í þriðja sæti með lagið Heathens.

Sjá einnig: Fyrsta plata Kaleo fer af stað með hvelli, á topplista iTunes um allan heim

Platan A/B með Kaleo kom út í júní og fór toppinn á listum iTunes víða um heim og ofarlega á lista í Bandaríkjunum og Bretlandi.

Platan er gefin út af útgáfurisanum Atlantic en Sena sér um útgáfu plötunar hér heima. Platan fór á toppinn á lista iTunes í Kanada, Grikklandi, Írlandi, Lúxemborg, Nýja-Sjálandi, Ísrael, Líbanon og Sviss. Í annað sæti í Suður-Afríku og Rússlandi og í þriðja sæti í Bandaríkjunum og Bretlandi.

Þá komst platan á topp tíu í Ástralíu, Singapore, Indlandi, Tyrklandi og inn á lista í Austurríki, Danmörku, Frakklandi, Hollandi, Ítalíu og í Þýskalandi.

Auglýsing

læk

Instagram