Kári Stefáns lætur stjórnvöld heyra það: Helvítis aumingjar og prinsipplausir aular

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, skrifar grein um þátttöku Íslands í efnahafsþvingunum á hendur Rússum í Fréttablaðið í dag. Kári varar við því að hætta að styðja aðgerðir vestrænna ríkja gegn Rússum.

Sjá einnig: Örskýring um viðskiptabann Rússa á Ísland

Auglýsing

Kári segist hafa talið að þátttakan í efnhagsþvingununum væri svo góð að hún væri hafin yfir alla gagnrýni. „Þótt fyrir henni hafi staðið utanríkisráðherra sem er slíkur endemis klaufi að flest sem hann gerir, hvort sem það er skynsamlegt eða ekki, virðist stórslys við fyrstu sýn,“ segir hann um Gunnar Braga Sveinsson.

Hann segir afleiðingarnar hafa verið fyrirsjáanlegar en Rússar hættu sem kunnugt er að kaupa fisk af Íslendingum.

„Hófust þá upp harmakvein þeirra sem fóru strax að sakna Rússagullsins sem er rúllugjaldið sem við höfðum ákveðið að borga til þess að fá að standa upprétt í samfélagi þjóðanna,“ segir Kári.

Í sömu andrá fór að kvarnast úr þeirri reisn stjórnvalda sem endurspeglaðist í ákvörðuninni að taka þátt. Forsætisráðherra bað forsetann að fara bónleið til sendiherra Rússa í þeirri von að honum tækist að sannfæra hann um að við værum slíkir helvítis aumingjar að það væri ljótt að kalla okkur til ábyrgðar fyrir eigin gerðir sem miðuðust þó við að kalla þá til ábyrgðar fyrir þeirra.

Kári segist hafa heyrt innan úr Stjórnarráðinu að Ísland muni stíga til hliðar þegar kemur að því að því að endurnýja þátttöku í aðgerðunum gegn Rússum um áramótin.

„Það bendir sem sagt allt til þess að stuðningur Íslendinga við aðgerðir gegn ofbeldi Rússa verði skammlífur og allur heimurinn fái að vita að við hættum vegna þess að við tímdum því ekki,“ segir Kári.

Hann telur að „svona hringl­andaháttur“ valdi mun meira efnahagslegu tjóni en nemur Rússagullinu.

„Ferðamannaiðnaðurinn er orðinn stærsta atvinnugrein þjóðarinnar vegna þess að land og þjóð þykja kúl og laða að sér fólk,“ segir hann.

„Ósnerta, fallega landið, hreina loftið og ákveðið sambland af sköpunarmætti og tærleika í fólkinu er undirstaða ferðamannaiðnaðarins. Ef við afklæðumst sjálfsvirðingunni fyrir framan alheim til þess að spara fé hættum við að vera kúl og breytumst í blauta, nakta, kalda eyju í Norður-Atlantshafi þar sem búa prinsipplausir aular sem enginn vill heimsækja.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing