Alan Fletcher, sem leikur lækninn Karl Kennedy í Nágrönnum, hefur birt myndband frá Íslandsferð sinni í janúar. Fletcher kom fram ásamt hljómsveit á Spot í Kópavogi og myndbandið hefst einmitt þar þegar æstir aðdáendur leikarans öskra af eftirvæntingu.
Sjá einnig: Topp 7: Persónur í Nágrönnum
Fletcher segir í nýrri færslu á bloggsíðu sinni að hann geti hreinlega ekki beðið eftir að koma aftur til Íslands.
Ég vissi að tæplega helmingur þjóðarinnar horfir á Nágranna. Þannig að planið var að fara í vikuferð til Íslands, spila á töff stað í Reykjavík og skoða okkur svo um.
Hann spilaði svo á Spot í Kópavogi og eins og myndbandið sýnir var tekið vel á móti honum.