Haukur Viðar Alfreðsson, hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofunni Brandenburg játar í bakþönkum Fréttablaðsins í dag að bera ábyrgð á því að þetta myndband fór á netið:
Búið er að horfa oftar en 200 þúsund sinnum á myndbandið á síðustu fimm árum og frasinn „mibilábilibilábiliba“ er fyrir löngu orðinn landsfrægur.
Villi sagðist í viðtali á dögunum gruna vini sína um að gera sér þennan grikk en nú hefur Haukur játað. Hann biðst afsökunar í pistli sínum. „Ég veit það núna að þetta var illa gert.“
Í viðtali um daginn sagðirðu að þig grunaði vini þína um að hafa lekið myndbandinu. Það er ekki rétt. Ég er Lekamaðurinn. Óknyttastrákur og eineltispési sem þú þekkir ekki neitt. Sorrí með þetta, elsku Villi minn.
Haukur lýkur pistlinum á því að segja Villa geta huggað sig við að hann fái þetta örugglega borgað einhvern daginn. „Karma sér nefnilega um sína,“ segir hann.
Og það mætti segja að karma sé búið að sjá um Hauk en orkulúr hans, sem Nútíminn sagði frá í síðustu viku, hefur ferðast á ótrúlegum hraða um heiminn og er orðinn að svokölluðu „meme“.
Myndirnar hafa verið skoðaðar hátt í milljón sinnum hér og vefur breska blaðsins Daily Mail fjallaði um þær í gær. Nú hefur vefur bandaríska morgunþáttarins Good Morning America hefur fjallað um þær ásamt BuzzFeed, sem er einn vinsælasti vefur heims.
Vinnufélagar Hauks Viðars tóku mynd af honum þegar hann fékk sér stuttan hádegisblund og notuðu svo Photoshop til að setja hann í ýmsar sprenghlægilegar aðstæður.
Brynjar Smári Alfreðsson, yngri bróðir Hauks, dreifði tengli á myndirnar á Reddit, einni mest sóttu vefsíðu heims og viðbrögðin stóðu ekki á sér.
Orkulúr Hauks náði á tímabili fyrsta sætinu á Reddit yfir vinsælasta efnið og fjörugar umræður hafa skapast um myndirnar með hátt í 500 ummælum.