Karolina Fund vinnur að nýrri þjónustu, miðlar lánum sem geta reynst hagstæðari

Karolina Fund hyggst byrja að miðla svokölluðum P2P-lánum á næstunni. Fyrirtækið verður þá aðeins milliliður um fjármögnun verkefna og fjárfestinga fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Þetta kom fram í máli Inga Rafns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Karolina Fund, á fundi í Íslandsbanka í morgun.

Upptöku frá fundinum má sjá hér fyrir neðan en hann var í beinni útsendingu á Nútímanum.

Við erum að fara af stað í vegferð sem við köllum fjármálafyrirtæki framtíðarinnar. Hvað nákvæmlega það felur í sér get ég ekki gefið upp að fullu en ég get gefið ákveðnar vísbendingar.

Auglýsing

Hann benti á gríðarlegan vöxt í hópfjármögnun í fyrra og sagði að vöxturinn væri mestur í P2P-lánum. Þá benti hann á að peningarnir væru að mestu að fara í frumkvöðlastarfsemi og tók ævintýralegan árangur bruggverksmiðjunnar Brewdog sem dæmi.

Ingi Rafn sagði að bankakerfið í Danmörku væri að tapa fyrir P2P-lánum en Karolina Fund hyggst vera fyrsti aðilinn sem býður upp á slíka þjónustu á Íslandi.

Ingi benti á að P2P-lán höfði til skapandi aðila og minni fyrirtækja sem fá ekki eða vilja ekki taka lán hjá banka. Þá benti hann á að þau veittu möguleika á betri vaxtakjörum og lægri þjónustugjöldum.

Ingi talaði um fleiri spennandi verkefni sem eru á döfinni hjá Karolina Fund. Horfðu á fundinn hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing