Mammút sendi frá sér myndband við lagð Blood Burst í dag. Sunneva Ása Weisshappel leikstýrði myndbandinu sem má sjá hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Svona hljómar Mammút á ensku
Tónlist Mammút hefur hingað til verið á íslensku en lagið kom út á íslensku á plötunni Komdu til mín svarta systir á síðasta ári. Platan var valin sú besta á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár.
Mammút hefur gert samning við Bella Union útgáfuna sem er með listamenn á borð við Fleet Foxes, The Flaming Lips, John Grant og Father John Misty á sínum snærum.