Channing Tatum er staddur hér á landi. Tatum er mikið kyntröll og var til að mynda valinn kynþokkafyllsti maður heims í tímaritinu People árið 2012.
Tatum er þekktastur fyrir leik sinn í myndum á við 21 Jump Street, Magic Mike, Foxcatcher og Step up.
Samkvæmt frétt mbl.is ætlar Tatum að dvelja hér á landi í viku og skoða jökla, ásamt þremur félögum sínum.
Koma leikarans hefur strax vakið mikla athygli, sérstaklega hjá kvenþjóðinni sem slær á létta strengi á Twitter.
https://twitter.com/inga_lilja/status/597724887952793600
Channing Tatum á Íslandi. Get ég bara aldrei hætt að vera gelgja og hegðað mér eins og kona á fertugsaldri með bleikt hár? Farin í Lónið.
— Manuela Ósk (@manuelaosk) May 11, 2015
Hitti Channing Tatum, hann er með ljóta klippingu en samt mjög kúl
— Kolbrún Birna (@kolla_swag666) May 11, 2015
Til að slútta þessari frétt er hér handahófskennd mynd af Channing Tatum haldandi á hvolpi.