Konur, strákar og blaðamenn fá á baukinn frá Bylgju Babýlons: „Fokkið yður kurteisislega hart“

Leikkonan og uppistandarinn Bylgja Babýlons heldur að píkan sín sé farin að framleiða sand. Ástæðurnar eru nokkrar en hún fer yfir málið á Facebook-síðu sinni.

„Nú er komið rúmt ár síðan ég var með mitt fyrsta uppistand og ég verð að viðurkenna að ég held að píkan á mér sé farin að framleiða sand,“ segir hún og beinir fyrst orðum sínum til kvenna.

Auglýsing

„Ég er alveg til í að koma fram á kvennakvöldunum ykkar en hættið að vera svona ógeðslega hneykslaðar þegar ég vil fá borgað fyrir þau eins og öll önnur kvöld,“ segir hún og tekur næst fyrir þau sem vilja halda uppistandskvöld með konum til að sanna í eitt skipti fyrir öll að konur séu fyndnar.

„Fokkið yður kurteisislega hart.“

Við blaðamenn sem vilja hvort konur séu fyndnar segir Bylgja að þessi spurning valdi snípbólgum. „Ég hef ákveðið að svara henni héðan í frá bara með því að byrja að syngja Unbreak My Heart með Tony Braxton,“ segir hún.

Hún beinir að lokum orðum sínum til stráka sem nota: „Mér finnst konur venjulega ekki fyndnar, en…“ sem inngang í hrós. „Fokkið yður kurteisislega hart,“ eru skilaboðin til þeirra.

„Ég er all for kvennakraftur og að það vanti stelpur í uppistand og nýti mér samviskulaust slík tækifæri til að koma fram en ég nenni ekki að fokkin andskotast í helvíti til að tala um það á hverjum einasta guðsvolaða helvítis degi,“ segir Bylgja og tekur fram að hún sé fyndin manneskja, þótt þetta rant bendi mögulega til annars.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing