Kría kúkaði á Loga Bergmann

Logi Bergmann lenti í því gær að kría kúkaði á hann. Ekki einu sinni, heldur tvisvar.

Sjá einnig: Kolklikkuð kría dritar á dreng í Arnarfirði

Auglýsing

Svanhildur Hólm, eiginkona hans og aðstoðarmaður fjármálaráðherra, birti sláandi myndir á Facebook sem sýndu sjónvarpsmanninn útataðan og setti verknaðinn í samhengi við spilamennsku Loga á Nesvelli.

„Það er nokkuð ljóst hvað kríunum úti á nesi fannst um spilamennsku Loga í kvöld,“ sagði hún létt.

Nútíminn hafði samband við Loga sem var jafn hissa á þessu öllu saman og lesendur.

Ég var nú bara í golfi. En það merkilega við þetta er að ég hef komið á Nesvöllinn í 20 ár og helvítið hefur aldrei hitt. Svo gerist það tvisvar sama kvöldið!

Logi hafði þó lítinn tíma til að fara dýpra ofan í málið. „Má ekki vera að þessu. Er að fara að kaupa miða í Víkingalottóinu,“ sagði hann og var rokinn.

Það er ljóst að hætturnar leynast víða.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing