Krummi gefur út annað lag af væntanlegri plötu – fyrra lagið setið á vinsældalista Rásar 2 í tíu vikur

Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson hefur sent frá sér nýja smáskífu, Hinterland, sem er önnur útgáfan af væntanlegri breiðskífu hans sem kemur út í haust.

Lagið kom út 26. júní og er nú aðgengilegt á helstu streymisveitum. Samkvæmt tilkynningu frá Krumma er um að ræða norrænt alt-country lag sem sækir innblástur í þjóðlagatónlist og náttúruna.

Auglýsing

Um víðerni, dauðleika og frelsi

Í texta lagsins er fjallað um víðernin, dauðleikann og þá frelsistilfinningu sem felst í því að hverfa frá hinu kunnuglega og inn í hið óbyggða. Með myndrænni frásögn og melódískri nálgun er Hinterland sögð gefa innsýn í þann tónlistarheim sem Krummi hyggst opna enn frekar á nýju plötunni.

Krummi vakti nýverið athygli með laginu Smile Till It Ends, sem hefur notið töluverðra vinsælda og setið á vinsældalista RÚV í yfir tíu vikur.

Væntanleg plata Krumma er áætluð síðar á þessu ári.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing