KSÍ jafnar bónusgreiðslur karla- og kvennalandsliðsins í fótbolta

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur endurskoðað fyrirkomulag á árangurstengdum greiðslum til leikmanna A landsliða vegna leikja í undankeppnum stórmóta. Guðni Bergsson greindi frá þessu á fréttamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ nú rétt í þessu. Upphæðir sem greiddar eru til leikmanna fyrir áunnin stig í undankeppnum stórmóta verða nú þær sömu óháð því hvort liðið sé um að ræða. 

„Hingað til hefur fyrirkomulagið milli A landsliða karla og kvenna verið gerólíkt en eftir breytinguna er fyrirkomulagið orðið eins hjá báðum A landsliðum,· segir í tilkynningu á heimasíðu KSÍ.

Auglýsing

KSÍ hvetur önnur knattspyrnusambönd til að fylgja í kjölfarið. „Það er mikilvægt fyrir íslenska knattspyrnu að KSÍ sé framsækið og beri hag allrar knattspyrnufjölskyldunnar fyrir brjósti. Það er von KSÍ að þetta skref hvetji fleiri knattspyrnusambönd til að fylgja í kjölfarið og stærri skref verði stigin á næstu árum og misserum í átt til meira jafnréttis karla og kvenna í milli,“ segir í tilkynningunni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing