Gísli Pálmi, Úlfur Úlfur og miklu fleiri komu fram á Sneakerballi Nike í Gamla bíói á föstudag. Eins og myndirnar sýna var stemningin frábær en það er náttúrulega eina vitið að djamma í strigaskóm.
Hér fyrir neðan er svo myndaveisla frá partýinu, svona ef þú komst ekki. Eða ef þú komst og vilt endurupplifa stemninguna. Brynjar Snær og Þorgeir tóku myndirnar.
Þessir kappar léku listir sínar fyrir utan Gamla bíó
Og þau léku listir sínar bakvið barborðið við ekki minni undirtektir
Fólk lét flúra sig á staðnum
Úlfur Úlfur sendi frá sér nýja plötu á dögunum og stórkostlegt myndband. Rapparinn Helgi Sæmundur var skiljanlega kampakátur


Sviðið í Gamla bíói leit stórkostlega út
Gísli Pálmi kom fram við mikinn fögnuð viðstaddra. Nýútkomin plata hans hefur fengið góðar viðtökur
Gísli hélt í hefðirnar og reif sig úr að ofan
Tiny steig á svið með Gísla Pálma
Og gestir kvöldsins voru ansi hressir

















































