Land og skógur staðfestir móttöku á haldlögðu timbri frá lögreglu

Land og skógur staðfestir að stofnunin hafi tekið við timbri sem lögregla lagði hald á í tengslum við fíkniefnamál timbursalans Páls Jónssonar, þrátt fyrir að áður hafi verið upplýst að efninu hefði verið fargað.

Þetta kemur fram í svari Hreins Óskarssonar, sviðsstjóra hjá Landi og skógi, við fyrirspurn Nútímans.

Auglýsing

Samkvæmt svari hans hafði embætti héraðssaksóknara samband við stofnunina vorið 2024 og óskaði eftir því að hún tæki við timbri sem lagt hafði verið hald á. Efnið hafi verið afhent hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu „til eyðingar með umhverfisvænum hætti“ og samkomulag hafi verið um að Land og skógur fengi það án endurgjalds.

Timbrið enn í geymslu í Gunnarsholti

Í svari Lands og skóga kemur fram að efnið hafi verið sett í geymslu í Gunnarsholti þar sem það sé „að langmestu leyti enn“. Stofnuninni sé ekki heimilt að ráðstafa efninu áfram og hafi því ekki verið dreift né selt.

Þá segir að Land og skógur muni fylgja fyrirmælum lögreglu um frekari meðferð timbursins ef í ljós komi að misbrestur hafi orðið í málinu.

Timbur sem lögregla sagðist hafa fargað reyndist afhent þriðja aðila

Andstætt fyrri upplýsingum um förgun

Nútíminn greindi frá því í gær að samkvæmt gögnum og frásögn Páls hefði honum verið tjáð að timbrinu hefði verið fargað og að hann ætti ekki kröfu vegna þess. Nú liggur hins vegar fyrir að efnið var afhent ríkisstofnun til „eyðingar“, en er enn til staðar í geymslu.

Málið vekur því spurningar um hvort upplýsingar til eiganda um afdrif haldlagðra muna hafi verið réttar og á hvaða lagagrundvelli var ákveðið að afhenda efnið til þriðja aðila.

Getur haft áhrif á bóta- og gjaldþrotamál

Páll Jónsson hefur krafist rúmlega 7,7 milljóna króna í bætur vegna timbursins og fer fram á endurupptöku gjaldþrotamáls félags hans, meðal annars á þeirri forsendu að timbrið hafi verið raunveruleg eign þegar gjaldþrotið var úrskurðað.

Ef staðfest verður að efnið hafi ekki verið fargað gæti það haft þýðingu fyrir mat á eignastöðu félagsins á þeim tíma.

Beðið eftir svörum lögreglu

Nútíminn hefur óskað eftir skýringum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og embætti héraðssaksóknara um:

  • á hvaða lagagrundvelli timbrið var afhent Landi og skógi,
  • hvers vegna eiganda var sagt að því hefði verið fargað,
  • og hvort til standi að endurmeta meðferð haldlagðra muna í málinu.

Svör höfðu ekki borist þegar frétt þessi var birt.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing