Langflestir lögreglumenn á Suðurnesjum – fæstir á höfuðborgarsvæðinu

Í svari Dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu Sýnar kemur fram að hlutfallslega séu langflestir lögreglumenn starfandi á Suðurnesjum. Þar eru rúmlega 39 lögreglumenn á hverja tíu þúsund íbúa. Til samanburðar eru aðeins rúmlega 13 lögreglumenn á hverja tíu þúsund íbúa á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 64 prósent þjóðarinnar búa.

Fimmtíu ný stöðugildi – meirihlutinn til borgarinnar

Í byrjun árs boðaði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra að fjölga ætti stöðugildum innan lögreglunnar um fimmtíu. Meirihluti þeirra, alls 28, fór til embættis Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar á eftir fékk embætti Lögreglunnar á Norðurlandi eystra sex stöðugildi og Lögreglan á Suðurlandi fjögur.

Auglýsing

Þrátt fyrir hátt hlutfall lögreglumanna á Suðurnesjum fékk embættið þar þrjú stöðugildi. Minna fékkst á Austurlandi, Vestfjörðum, Vesturlandi og hjá Ríkislögreglustjóra, þar sem aðeins tvö stöðugildi bættust við hvert embætti. Vestmannaeyjar fengu ekkert.

Fólksfjölgun, ferðaþjónusta og ný tegund afbrota

Í svarinu segir að bent hafi verið á að fjöldi starfandi lögreglumanna hafi ekki haldist í hendur við fólksfjölgun, mikla aukningu ferðamanna né heldur breytt landslag afbrota. Hlutfallslega fæstir lögreglumenn eru á höfuðborgarsvæðinu, en þar er einnig stærsti hluti íbúanna.

Árið 2024 voru alls 795 lögreglumenn starfandi á Íslandi, að frátöldum nemum og héraðslögmönnum. Í haust hófu 96 nám í lögreglufræði, og alls stunda nú 176 nemendur námið. Gert er ráð fyrir metfjölda brautskráðra lögreglumanna á næstu árum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing