Lars leysir frá skjóðunni, Siggi Raggi átti hugmyndina að því að ráða hann

Lars Lägerbeck segir Sigurð Ragnar Eyjólfsson, fyrrum landsliðsþjálfara kvennalandsliðsins og yfirmann menntunarmála hjá KSÍ, hafa fyrstan viðrað hugmyndina að því að hann yrði þjálfari Íslenska karlalandsliðsins. Þetta kemur fram á Vísi.

Sjá einnig: Geir Þorsteinsson átti hugmyndina að ráðningunni á Lars: „Ég þekkti manninn“

Auglýsing

Nútíminn greindi frá því í gær að þrír menn hefðu stigið fram og bent á þátt sinn í ráðningunni á Lars, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, Henry Birgir Gunnarsson og Kolbeinn Tumi Daðason.

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sagði svo í Akraborginni á X977 í gær að hann hafi átt hugmyndina að því að ráða Lars Lag­er­bäck sem þjálfara íslenska karlalandsliðsins.

Lars staðfestir á Vísi það sem Sigurður Ragnar hafði að segja um málið.

Mig minnir að hann hafi spurt hvort ég hefði áhuga á þessu verkefni og hvort ég væri tilbúinn í það. Eitthvað í þá veru. Mig minnir að við höfum ekki farið í nein nákvæm smáatriði. Síðan leið einhver tími þar til að Geir hringdi í mig og spurði hvort ég hefði áhuga.

Hann telur blaðaviðtölin ekki með í þessu ferli. „Nei, ég tel fjölmiðlana ekki með, því held að þeir geti ekki boðið manni þjálfarastarf,“ segir hann á Vísi.

Taktu prófið! Hversu vel þekkirðu Lars Lagerbäck?

Sig­urður Ragn­ar, fyrr­ver­andi landsliðsþjálf­ari kvenna í knatt­spyrnu og fræðslu­stjóri Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, sagðist í færslu á Facebook-síðu sinni hafa sann­fært stjórn­end­ur KSÍ um að Lars Lag­er­bäck ætti að taka við þjálf­un ís­lenska karla­landsliðsins fyr­ir fjór­um árum síðan.

Íþróttafréttamaðurinn Henry Birgir benti á dögunum á viðtal sem hann tók við Lag­er­bäck í september árið 2011 þar sem sá sænski sagðist vera til í viðræður við KSÍ.

Kolbeinn Tumi, fréttastjóri Vísis og fyrrverandi íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu, benti á viðtal sem hann tók við Lag­er­bäck fyrir vefinn Sammarinn.com í janúar árið 2010. Viðtalinu lýkur á því að Lag­er­bäck er spurður hvort það kæmi til greina að taka við þjálfun íslenska landsliðsins. „Ekki spurning!“ svarar hann.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing