Leikur Hollands og Íslands á morgun verður sýndur í beinni útsendingu á risaskjá á Ingólfstorgi.
Gríðarleg spenna er fyrir leik Íslands og Hollands í undankeppni Evrópumóts karla í fótbolta á næsta ári. Leikurinn fer fram í Amsterdam og hefst klukkan 18.45 á morgun.
Fjarskiptafyrirtækið Nova stendur fyrir uppátækinu en góð stemning myndaðist á sama stað þegar heimsmeistaramót karla í fótbolta var sýnt í fyrra.
Á vef Nova kemur fram að skjárinn hafi verið fluttur til Íslands fyrr á þessu ári og sé sá stærsti og öflugasti sem hefur komið til landsins. „1.000.000 LED díóður og 720p upplausn.“