Í leitarflugi Landhelgisgæslu með björgunarsveitarmönnum Eyvindar á Flúðum í dag fannst lík af karlmanni á austurbakka Hvítár, neðan Brúarhlaða. Líkið hefur verið flutt til rannsóknar á Rannsóknarstofu Háskólans. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.
Sterkar líkur eru á því að líkið sé af Nika Begadze sem féll í Hvítá við Gullfoss fyrr í sumar.
Fréttin verður uppfærð.
Í leitarflugi Landhelgisgæslu með björgunarsveitarmönnum Eyvindar á Flúðum í dag fannst lík af karlmanni á austurbakka…
Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Sunnudagur, 13. ágúst 2017